Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Skjáir á vegg í töskusal

Náðu til allra komufarþega. Um er að ræða 2 hágæða LED skjái af nýjustu gerð, skjáirnir eru vel staðsettir á vegg í salnum og er hvor skjár 315 tommur að stærð. Skjáirnir eru samtengdir og birta alltaf sama efni á sama tíma.

Auglýsingar birtast í 8 sekúndur og að jafnaði einu sinni á hverjum 80 sekúndum.  Möguleiki er á að vera með allt að fimm mismunandi útfærslur af efni sem rúllar til skiptis. Það nýtist auglýsendum vel til að koma fjölbreyttum skilaboðum á framfæri meðan farþegar dvelja og bíða eftir farangri.

Skjáirnir bjóða upp á að birta mynd eða myndband. Hvor skjár hefur sína sérstöðu. Skjárinn hægra megin nær öllum sem koma inn í miðrýmið og þeim sem dvelja við enda töskubandanna að bíða eftir farangri. Skjárinn vinstra megin hittir á miðju bandanna og nær vel til þeirra sem dvelja þar sem töskurnar koma inn á bandið. Lögun og stærð skjáanna bjóða upp á marga skemmtilega möguleika til að fanga athyglina.

Auglýsingar á veggskjáum ná til allra Íslendinga á heimleið og ferðamanna sem eru komnir til að njóta lands og þjóðar.

Markhópur
Komufarþegar
Pixel stærð
4160x720
Stærð
315 tommur
Sniðmát
MP4, JPG, PNG
Skjátegund
M560-B

Hlaða niður

Mynd í háupplausn

;