Leigubílar, rútur og stórnotendur
Leigubílastæði
Núverandi gjaldskrá fyrir leigubílaþjónustu við flugstöðina í Keflavík tók gildi árið 2015, með það að markmiði að bæta umferðarskipulag og aðstöðu fyrir bílstjóra.
Aðgangsstýrt svæði er eingöngu fyrir leigubílstjóra með gilt atvinnuleyfi samkvæmt lögum nr. 120/2022.
Umsókn um aðgang er rafræn og hægt er að fylla hana út hér fyrir neðan. Aðeins þeir sem hafa fullt atvinnuleyfi geta keypt aðgang; skilyrt leyfi eru ekki gild.
Verð fyrir staka ferð er 490 krónur.
Rútustæði
Gjaldtaka fyrir hópbifreiðar við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli felst einungis í gjaldi fyrir sótta farþega en ekki fyrir farþega sem sleppt er út. Athugið að skilmálar um aðgang að hópbifreiðasvæðinu voru uppfærðir 1. júní 2024.
Verðskrá (gildir frá 1. okt 2024 - 1. maí 2025)
– gjaldið tekur breytingum 1. maí ár hvert í samræmi við neysluverðsvísitölu.
Stakt gjald fyrir 10 eða færri farþega: 2.990 kr.
Stakt gjald fyrir hverja ferð 11 - 19 farþega: 4.390 kr.
Stakt gjald fyrir hverja ferð 20 - 45 farþega: 9.900 kr.
Stakt gjald fyrir hverja ferð 46 eða fleiri farþega: 13.490 kr.
Verðskrá fyrir stórnotendur
Þessi verðskrá gildir fyrir stórnotendur sem nota bílastæðin P3 og P1 við Keflavíkurflugvöll. Hún nær aðeins til ökutækja skráðra fyrir 7 farþega eða færri, með heildarþyngd undir 3.500 kg og sem ekki eru notuð í atvinnuskyni.
Stórnotendur eru skilgreindir sem:
KEF Parking Standard (ársviðskipti yfir 2.000.000 kr.)
KEF Parking Plus (ársviðskipti yfir 20.000.000 kr.)
Aðeins notendur með virka reikninga í skilum hjá Isavia ohf. geta nýtt þessa þjónustu. Almenn verðskrá gildir að öðru leyti.