Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Tæki­færin liggja á ein­um fjöl­farn­asta stað Ís­lands

Keflavíkurflugvöllur er dýnamískur og spennandi staður að vera á. Mikil viðskipti eiga sér stað á svæðinu en um helmingur farþega á leið úr landi kaupa sér veitingar og um 60% versla sér vörur. Framundan eru miklar stækkanir og breytingar á aðal verslunarsvæðinu sem munu auka verulega á þjónustu við gesti.

Við bjóðum út spennandi tækifæri í verslunar- og veitingaþjónustu á næstu misserum og leitum sérstaklega eftir viðskiptafélögum sem hafa að markmiði að veita framúrskarandi þjónustu og gæði, geta starfað í flóknu viðskiptaumhverfi og brugðist hratt við síbreytilegum aðstæðum og hafa sjálfbærni að leiðarljósi.