Vegabréfaeftirlit & tollur
Vegabréfaeftirlit
Þegar þú ferðast um á Schengen svæðinu þarftu ekki að framvísa vegabréfinu þínu á landamærum. Þú þarft hins vegar að hafa meðferðis gild persónuskilríki. Því er mikilvægt að íslenskir ferðamenn hafi ávallt vegabréf sitt meðferðis þar sem engin önnur raunveruleg persónuskilríki eru gefin út hér á landi. Einnig ber að hafa í huga að flugfélög geta krafist þess að ferðamenn framvísi vegabréfum áður en gengið er um borð í flugvél.
Ef þú ert að ferðast utan Schengen, þ.e. til Bretlands, Írlands og Norður-Ameríku þarftu að fara í gegnum vegabréfaeftirlit við brottför og komu til landsins. Sjá nánari upplýsingar um Schengensvæðið.
Kerfisbundin skoðun á ferðaskilríkjum
Ákvæði EU reglugerðar nr. 2017/458 var innleidd við framkvæmd landamæraeftirlits á ytri landamærum á Keflavíkurflugvelli frá og með 7. október 2017. Megin breytingin kveður á um það að allir þeir sem fara um ytri landamærin skulu sæta kerfisbundinni skoðun á ferðaskilríkjum og skal gildi skilríkja kannað með samanburði í tilteknum gagnagrunnum með upplýsingum um stolin, týnd eða ógild ferðaskilríki, innlendum sem erlendum (Interpol stolen and lost documents) Þá ber að fletta öllum upp í Schengen upplýsingakerfinu. Gera má ráð fyrir því að þessi breyting hafi áhrif á meðalafgreiðslutíma farþega sem fara um landamærin.
Ákvæði EU reglugerðar nr. 399/2016 verður innleidd við framkvæmd landamæraeftirlits frá og með 1. nóvember 2017 en sú breyting felur í sér eftirfarandi:
- Útlendingur (erlendur ríkisborgari sem er ekki EES-EFTA útlendingur) sem hyggst dvelja á Schengen svæðinu þarf að framvísa ferðaskilríkjum sem skal hafa verið gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt.
Gildistími vegabréfs útlendings (erlendur ríkisborgari sem er ekki EES-EFTA útlendingu) skal vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag.
Útrunnið vegabréf
Fyrir allar nánar upplýsingar um hvernig skal bera sig að fyrir endurnýjun vegabréfs bendum við á Sýslumann - Sækja um vegabréf.
Tollur
Tollfríðindi
Ef þú hefur tollskyldan varning meðferðis þegar þú kemur að utan ber þér að framvísa honum við komu til landsins þegar gengið er út um komusalinn.
Heimilt er að hafa meðferðis til landsins tollfrjálsan varning upp að ákveðnu verðmæti sem tilgreint á vef Tollstjóra.
Allar upplýsingar um tollfríðindi og innflutningstakmarkanir er að finna á vef Tollstjóra.